Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vefsíða vistar í vafranum þínum. Þær geta munað stillingar, til dæmis hvort þú hefur þegar svarað kökuborðanum, eða safnað upplýsingum um hvernig vefurinn er notaður. Sumar eyðast þegar þú lokar vafranum, aðrar lifa lengur.
Flokkar vafrakakna
| Flokkur | Dæmi um tilgang | Líftími |
|---|---|---|
| Nauðsynlegar | Muna val þitt í kökuborðanum, öryggi og álagsdreifing | Lota upp í 12 mánuði |
| Virkni | Muna stillingar, til dæmis opna flipa eða síur | Allt að 12 mánuðir |
| Tölfræði | Telja heimsóknir og sjá hvaða síður eru lesnar, án þess að bera kennsl á þig | Allt að 14 mánuðir |
| Markaðs- og samstarfskökur | Skrá að smellt hafi verið á samstarfstengil svo hægt sé að reikna þóknun | Allt að 30 dagar |
Nauðsynlegar kökur eru alltaf virkar, því án þeirra virkar vefurinn ekki eins og hann á að gera. Hinir flokkarnir eru aðeins virkjaðir ef þú samþykkir þá.
Samþykki og lagagrundvöllur
Samkvæmt lögum um fjarskipti nr. 70/2022 má aðeins vista kökur sem ekki eru nauðsynlegar ef notandi hefur gefið upplýst samþykki. Þegar kökurnar tengjast persónuupplýsingum gildir einnig GDPR. Samþykki á að vera jafn auðvelt að hafna og að veita, og þess vegna eru hnapparnir í kökuborðanum jafnstórir.
Ef þú hafnar öllum kökum nema nauðsynlegum virkar vefurinn nánast eins. Eini munurinn er sá að við sjáum ekki í tölfræðinni að þú hafir komið, og smellir á samstarfstengla eru ekki skráðir með köku hjá okkur. Það hefur engin áhrif á hvaða efni þú sérð eða hvaða tilboð eru sýnd.
Kökur frá þriðju aðilum
Þegar þú smellir á samstarfstengil og ferð inn á vef spilavítis getur rekstraraðilinn sett eigin vafrakökur á sínu léni. Þær kökur eru ekki á okkar ábyrgð og um þær gildir persónuverndarstefna rekstraraðilans. Við ráðleggjum þér að skoða kökuborðann á þeim vef áður en þú samþykkir. Um samstarfstengla almennt má lesa í notkunarskilmálunum og á síðunni Um okkur.
Hvernig þú breytir samþykki
Þú getur opnað kökustillingarnar aftur með tenglinum neðst á hverri síðu og breytt vali þínu hvenær sem er. Þú getur líka eytt kökum beint í vafranum:
- Chrome: Stillingar, síðan Persónuvernd og öryggi, og þar Vafrakökur og önnur vefsvæðisgögn.
- Safari: Stillingar, flipinn Persónuvernd, og þar Stjórna gögnum vefsvæða. Í iPhone er þetta undir Stillingar og Safari.
- Firefox: Stillingar, síðan Persónuvernd og öryggi, og þar Vafrakökur og vefsvæðisgögn.
- Edge: Stillingar, síðan Vafrakökur og heimildir vefsvæða.
Heiti valmynda geta verið örlítið önnur eftir útgáfu og tungumáli vafrans. Ef þú eyðir öllum kökum mun kökuborðinn birtast aftur næst þegar þú kemur á vefinn.
Flestir vafrar bjóða líka upp á huliðsstillingu, þar sem kökum er eytt sjálfkrafa þegar glugganum er lokað. Það getur hentað ef þú deilir tölvu með öðrum. Hafðu í huga að ef þú lokar á allar kökur, líka nauðsynlegar, getur vefurinn ekki munað að þú hafir þegar svarað kökuborðanum.
Nánari upplýsingar
Hvernig við förum með persónuupplýsingar, hversu lengi þær eru geymdar og hvaða réttindi þú hefur kemur fram í persónuverndarstefnunni. Spurningum um kökur má beina til okkar í gegnum síðuna Hafðu samband.