Hvernig crash-leikir virka
Áður en umferð hefst leggurðu undir, til dæmis 500 kr. Svo fer flugvél, eldflaug eða geimfari af stað og margfaldarinn hækkar. Ef þú ýtir á „cash out“ við 2,40x færðu 1.200 kr. Ef leikurinn springur við 1,80x áður en þú ýtir, tapar þú veðmálinu. Umferð tekur frá örfáum sekúndum upp í hálfa mínútu og allir spilarar spila sömu umferðina samtímis.
Hvar leikurinn springur er ákveðið áður en umferðin byrjar. Hreyfimyndin er bara framsetning á tölu sem þegar liggur fyrir. Það er mikilvægt að skilja, því það þýðir að engin tilfinning fyrir „flæði“ getur hjálpað þér.
Vinsælustu crash-leikirnir
| Leikur | Framleiðandi | RTP | Sérkenni |
|---|---|---|---|
| Aviator | Spribe | 97% | Tvö veðmál í einu, spjall og tölfræði umferða |
| JetX | SmartSoft Gaming | Um 97% | Þotur og aukaleikir í sömu umferð |
| Spaceman | Pragmatic Play | 96,5% | Hægt að taka helming út og láta afganginn fljúga |
| Crash (originals) | Eigin leikir kriftósíðna | 97–99% | Provably fair með opinberum hashum |
| Chicken-leikir | Ýmsir, t.d. InOut | Um 97–99% | Skref fyrir skref, þú velur erfiðleikastig |
Chicken-leikirnir eru nýleg afbrigði þar sem hæna gengur yfir götu eða brú. Hvert skref hækkar margfaldarann og þú ákveður sjálfur hvenær þú hættir. Grunnhugmyndin er sú sama og í crash, bara hægari og persónulegri. Meira um framleiðandann á bak við Spaceman á síðunni um Pragmatic Play.
Crash á kriftósíðum
Margar kriftósíður hafa sína eigin „originals“: Crash, Limbo, Dice, Mines og Plinko. Þessir leikir hafa oft hærra RTP en hefðbundnir spilakassar, því síðan þarf ekki að borga framleiðanda.

Á myndinni sést Shuffle, bæði í fartölvu og síma. Efst eru kynningarborðar um stigahækkun og keppnir upp á 20.000 dollara, og fyrir neðan „Shuffle Games“ röðin með Dice, Mines, Keno, Limbo og Plinko. Limbo er í raun crash án hreyfimyndar: þú velur margfaldara fyrirfram og sérð strax hvort umferðin náði honum. Allt er á ensku og í dollurum, eins og á flestum síðum af þessu tagi.

Hér sést 1xGames-hlutinn hjá 1xBet, einni af fáum síðum með valmyndir á íslensku. Crash er efst á borðanum og undir honum raðast smáleikir eins og Crash Point og Under and Over 7, margir merktir með hámarksstuðli. Takið eftir hægri dálkinum með endurgreiðslu: hann ýtir þér í næstu umferð, og einmitt þess vegna set ég sjálfvirka útborgun áður en ég byrja.
Provably fair: hvað það þýðir
Í „provably fair“ kerfi getur þú sjálf eða sjálfur staðfest að úrslitin hafi ekki verið fölsuð eftir á. Svona virkar það í stuttu máli:
- Síðan býr til server seed, leynilega slembitölu, og sýnir þér hash hennar (t.d. SHA-256) áður en umferð hefst.
- Þú, eða vafrinn þinn, leggur til client seed sem þú getur breytt.
- Úrslitin eru reiknuð úr báðum fræjunum ásamt teljara (nonce).
- Þegar þú skiptir um fræ birtir síðan gamla server seed. Þú getur keyrt það í gegnum hash-fall og séð að það passar við það sem þér var sýnt fyrirfram.
Þetta sannar að síðan breytti ekki úrslitunum eftir að þú lagðir undir. Það sannar hins vegar ekki að leikurinn sé hagstæður. Húsið hefur samt sitt forskot, venjulega 1–3%, sem er innbyggt í formúluna.
Sjálfvirk útgreiðsla og aðferðir
Allir helstu crash-leikir hafa sjálfvirka útgreiðslu (auto cash-out). Þú stillir til dæmis 1,50x og leikurinn tekur út sjálfkrafa. Það er gagnlegt, því það fjarlægir freistinguna að bíða „aðeins lengur“.
Á netinu er mikið talað um aðferðir: tvöfalda eftir tap (Martingale), bíða eftir þremur lágum umferðum í röð, eða fylgja „spám“ í Telegram-hópum. Ekkert af þessu virkar. Hver umferð er óháð þeirri síðustu og væntanlegt tap er það sama hvaða útgreiðslumark sem þú velur. Martingale breytir bara mörgum litlum vinningum í eitt stórt tap. Og forrit sem segjast spá fyrir um Aviator eru svindl, oft til að ná í innskráningarupplýsingar.
Ég prófaði 1,20x sjálfvirka útgreiðslu í demo í klukkutíma. Tíu vinningar í röð, svo sprakk leikurinn við 1,00x og tók þá alla aftur. Tölfræðin er ekki flókin, hún er bara óþolinmóð.
Sigrún Hallgrímsdóttir
Hraðasti leikurinn í spilavítinu
Umferð á 10 sekúndna fresti þýðir hundruð veðmála á klukkutíma. Settu tapmörk áður en þú byrjar og lestu um ábyrga spilamennsku. Alvöruspil er aðeins fyrir 18 ára og eldri.
Ef þú vilt prófa áður en þú leggur undir, er demo í boði í flestum crash-leikjum. Sjáðu fleiri flokka á síðunni um ókeypis spilavítaleiki og samanburð spilavíta á forsíðunni.
Algengar spurningar
Er hægt að spila Aviator frítt?
Já, Aviator og flestir aðrir crash-leikir hafa demo-ham með gervipeningum. Á sumum síðum þarftu að skrá þig inn fyrst.
Hvert er RTP í Aviator?
Spribe gefur upp 97%, sem þýðir að húsið heldur um 3% af veltu til lengri tíma.
Virka Aviator-spáforrit?
Nei. Úrslitin eru reiknuð úr fræjum sem ekki er hægt að sjá fyrirfram. Forrit sem lofa spám eru svindl.
Hvað þýðir provably fair?
Að þú getir staðfest með server seed, client seed og hash að úrslitum hafi ekki verið breytt eftir að þú lagðir undir. Það tekur ekki forskot hússins í burtu.
Hvaða útgreiðslumark er best?
Ekkert er stærðfræðilega betra en annað. Lágt mark gefur oftar litla vinninga, hátt mark sjaldnar stóra, en væntanlega útkoman er sú sama.